Engillinn bloggar
30.04.2007 10:47:20 / Björg

Þórsmörkin :) :)

Ég varð nú bara að blogga um helgina mína :) :) því hún var svo æðisleg, veit ekki hvort ég geti sett það almennilega í orð :) :).

Við fórum sumsé uppí Þórsmörk, gönguhópurinn minn hérna í vinnunni :) :) og nokkrir makar flutu með ;) m.a. minn :D. Fengum þetta líka geggjaða veður og það var bara algjört æði að vera inní Mörk, reyndar eins og alltaf :) en þetta var samt alveg sérstaklega góð ferð. Byrjuðum á föstudeginum á því að renna okkur inní Bása, vorum bara 6 saman þá (við Birgir skildum okkar bíl eftir og tróðum okkur inní jeppann með hinum síðasta spölinn yfir árnar). Vorum bara í rólegheitum á föstudeginum, spiluðum og sötruðum smá bjór :) og svo teknar stórkostlegar myndir í tunglskininu um nóttina :). Daginn eftir vaknaði fólk á mismunandi tímum og fór í stuttar göngur í nágrenninu á meðan beðið var eftir Stjána og co. Svo þegar þau voru komin, þá vorum við sumsé orðin 10 og fórum á tveimur jeppum yfir Krossánna yfir í Langadal :) þar sem við vorum svo á laugardeginum. Fórum í geggjaða göngu, svokallaðan Tindfjallahring, sem er um 10 km og tekur svona 3 klst. að labba, en það var svo geggjað veður að við tókum okkur góðar útsýnis- og nestispásur og nutum sólarinnar og náttúrunnar og vorum í rúma 4 tíma að klára hringinn. Þetta var algjörlega geggjuð ganga :) :) og ég hefði alveg getað hugsað mér að vera þarna í nokkra daga til viðbótar :) og labba meira og bara vera til. Svo eftir það fóru nokkrir í laugina í Húsadal en við vorum 4 sem fórum í kalt bað í læknum við skálann :D var doldið kalt en mjög svo hressandi. Svo var bara skellt á grillið og borðað og drukkið og trallað og drukkið og trallað og spjallað og rosa stuð :) :D. Daginn eftir voru sumir nú svo þunnir að hægt var að lesa moggann í gegnum þá ;) en mín var bara hress :) enda sjaldan eitthvað illa þunn ;). Svo á leiðinni heim var farið í pizzuveislu á Hvolsvelli, geggjaðar pizzurnar þar (og já hamborgararnir hjá Kidda Rót í Hveragerði eru líka rosalega góðir, fengum okkur svoleiðis á föstudeginum á leið útúr bænum).

Sumsé í einu orði sagt stórkostleg, æðisleg, meiriháttar, geggjuð helgi :) :) :) :) (ok ok, þetta voru fleiri en eitt orð ;) enda ekki annað hægt eftir svona upplifun).

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 20:43:32 / Björg

HÁSBÁS

Jæja, þá er komið að einni bloggfærslu :) svona í tilefni helgarinnar.

 Við vinkonurnar fórum í hina árlegu sumarbústaðaferð okkar :) :) og var þetta í fimmta skipti sem við fórum.  Alveg meiriháttar gaman hjá okkur auðvitað :) og nauðsynlegt að fara útúr bænum og endurhlaða batteríin.  Ég er með hálfgerðar saknaðartilfinningu núna, yfir að helgin sé búin.  En við erum sossum ekki búnar með okkar skemmtanir þetta árið :) eigum eftir að fara erlendis í sumar :) og svo er það HÁHOP ;).

Ok, fyrir ykkur sem skiljið ekki HÁSBÁS og HÁHOP, þá er það Hin Árlega Sumarbústaðaferð Bjargar, Ásdísar og Sólrúnar ;) og svo Hin Árlega Humar- Og Pottaferð :) :)... erum svo sniðugar í skammstöfunum.  Margt fyndið sem gerðist þessa helgi, sem verður ekkert endurtekið í allra eyru ;) en eins og ég segi, ég sakna þess doldið að helgin sé bara búin.

Annars er sossum ekkert annað að frétta, allavegana ekkert sem verður sett svona á veraldrarvefinn ;) þið verðið bara að hafa samband ef þið eruð forvitin um framvindu Bjargarsögu.

Læt heyra frá mér síðar :).


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 11:49:03 / Björg

Þið segið ekkert...

.... þannig að það er ekkert skrýtið þó ég hafi hætt að blogga hérna ;), nenni ekki að tala við sjálfa mig.  Næsta blogg hjá mér kemur þegar þið hafið kommentað eitthvað :P

» 2 hafa sagt sína skoðun

31.01.2007 15:53:25 / Björg

Nýtt ár og alles :)

Jæja :) ég er á lífi, þó þetta blogg beri ekki þess vitni ;).  Er ekki alveg að hafa tíma til að blaðra eitthvað hérna inni, en það kemur kannski eitt og eitt orð frá mér stöku sinnum.

Átti afmæli í byrjun árs og hélt svaka partý :) :) margir mættu og skemmtu sér konunglega held ég :) ég fékk fullt af gjöfum og var þvílíkt ánægð með þær og skemmti mér líka alveg frábærlega :) takk aftur kærlega fyrir mig.  Á enn eftir að skella mér á skauta (fékk sumsé skauta í afmælisgjöf frá vinnuvinunum :) :)) og vonandi finnst tími fljótlega til þess.  Agalega lítið opið í þessari skautahöll fyrir almenning, þyrfti að breyta því eitthvað.

Annars er ég bara voða happí þessa dagana ;) skulum bara vona að það haldist sem lengst ;) verði bara varanlegt.... :P

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.12.2006 19:08:25 / Björg

Ef líf þitt væri bíómynd :)

Stal þessu frá Ásdísi :), loksins smá bloggerí... fannst þetta bara doldið sniðugt.

Ef líf þitt væri bíómynd, hvernig væri tónlistin í henni?
Þetta virkar svona:
1.Opnaðu spilarann sem þú notar (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
2. Settu á shuffle
3. Ýttu á spila(play)
4. fyrir hverja spurningu seturðu það lag sem er að spilast
5. Þegar þú ferð í næstu spurningu, ýttirðu á next takkan fyrir næsta lag.
6. Ekki svindla og þykjast vera kúl settu inn hvaða lag kemur…

Opening Credits/opnunarlag: Í grænum Mó - Vilhjálmur Vilhjálmsson :)

Waking/vöknun : You may be right - Billy Joel

First Day At School/fyrsti skóladagur: The Predatory Wasp of the Pali - Sufjan Stevens

Falling In Love/að verða ástfanginn: Rapture - Anthony & the Johnsons ( :))

Fight Song/baráttulag: Goody Two - Adam and The Ants

Breaking Up/sambandsslit:  (Marie´s The Name) His Latest Flame - Elvis Presley (jæja já....)

Prom/skólaball: Tears and Rain - James Blunt

Getting back Together/byrja aftur saman:  Da da da - Trio (80´s collection ;) hahahaha).

Birth of Child/fæðing barns:  Humble Me - Norah Jones

Final Battle/loka barátta:  So Says I - The Shins

Death Scene/Dauðasenan: Fitter Happier - Radiohead (hehehe)

Funeral song/jarðarfararlagið: Tears in Heaven - Páll Rósinkranz (vá, þetta er ekkert smá viðeigandi.....)

End Credits/Lokalagið:  Quattro - Calexico


Jahá, þetta var margt mjög viðeigandi, margt doldið fyndið :) en ég gerði bara alveg eins og í leiðbeiningunum, notaði iPodinn minn.  Er reyndar bara rétt búin að setja rúmlega 1500 lög inní hann aftur, eftir að hinn bilaði (fékk sumsé nýjan), en það stendur til bóta fljótlega :) þegar ég gef mér tíma í þetta.

Segi annars bara gleðilega hátíð :) og hafið það alltaf sem allra best.



» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 14:38:52 / Björg

Mont mont

Verð aðeins að monta mig :) :) labbaði Síldarmannagötur í gær 8).  Geggjað veður og bara meiriháttar ganga.  Fyrir þá sem eru ekki sleipir í landafræðinni, þá er þetta gamall stígur á milli Skorradals og Hvalfjarðar, ca. 14-15km langt minnir mig, allavegana segir www.ganga.is að þetta sé um 4-5 klst. ganga.  Við vorum afturámóti svo spræk að við gengum þetta á 3 klst. og 45 mín.  Mæli eindregið með þessari göngu fyrir alla :) falleg leið og ekki erfitt.  Smá bratt í lokin við Hvalfjörðinn (þess vegna miklu skynsamara að byrja í Skorradal) en ekki neinir klettar.  Björg lofthrædda varð bara ekkert hrædd ;).  Frábært útsýni þegar við vorum að koma niður og sáum yfir fjörðinn :) og inn Botnsdal, innað Botnssúlum og bara allt í kring. Akrafjall líka alltaf svo flott frá þessu sjónarhorni, svona stakt og glæsilegt.  Ég var bara í hyper-skapi í gærkvöldi, ekkert þreytt þannig, er með smá harðsperrur í rassi og herðum (var með stafi) en ekkert til að tala um.  Þannig að ég er bara spennt fyrir Laugavegsgöngunni eftir 10 daga :) :) held að ég verði bara ágæt í henni (7-9-13).

En já, endilega látið mig nú vita ef þið eruð enn að lesa þetta hjá mér ;) þrátt fyrir bloggleti mína undanfarið.  Hafið það gott í góða veðrinu 8).


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 13:24:12 / Björg

Eruði í alvöru...

... að segja mér að það séu nærri því komnir 2 mánuðir síðan ég skrifaði hérna síðast!?! 8|

Well, held ég sé bara alveg að gleyma þessari síðu, kíki bara hingað inn til að klikka mig áfram á þær síður sem ég er með hérna til hliðar ;) þið eruð hvort eð er ekkert að reka á eftir mér að skrifa, þannig að ég held bara að það sé enginn að lesa þetta hjá mér (sossum ekkert verið að lesa undanfarið ;) en samt....).

Anyways, lítið að frétta af mér þannig, fór í viku sumarfrí í byrjun júní, skellti mér uppí sumó og það var bara skítaveður allan tímann.  Fengum 2 klst. sól einn morguninn and that´s it.  Enda held ég að þetta sumar sé bara ekkert að koma og ég trúi því varla að það sé kominn júlí.  Var rosa dugleg í gær, fór á æfingu fyrir vinnu (loksins farin að gera það aftur :D) og svo fór ég uppá Esjuna í gærkvöldi :) :D 8).  Fór reyndar ekki alveg uppá tindinn (Þverfellshornið) enda var komin svo mikil rigning og lágskýjað að það hefði ekkert verið gaman.  Aðaltilgangurinn var að æfa fyrir Laugavegsgönguna sem verður farin 21. júlí :) :) og það náðist alveg með því að labba góðan hring þarna í Esjunni, upp að Steini og svo bröttu leiðina niður aftur (strákarnir voru hvort eð er ekkert að vera samferða mér ;) voru aðeins hraðskreiðari og ég vildi ekki vera að láta þá bíða eftir mér, meðan ég klöngraðist í klettum, algjör óþarfi).  En nú er stefnan tekin á að labba aðeins meira á fjöll næstu daga, svo að formið verði aðeins betra fyrir Laugaveginn :) :) hlakka ekkert smá mikið til, alltaf langað að labba þessa frægustu gönguleið landsins.  Og svo verður bara smá frí eftir það :) ca. 2 vikur eða svo.  Ætla svo að fara eitthvað til útlanda í haust með familíunni.

En já, ég ætla ekkert að lofa því að fari að blogga eitthvað rosalega reglulega :) ;) ekki nema þið rekið á eftir mér... svo vonum við bara að blogginnblásturinn láti sjá sig oftar.

Ta ta 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2006 11:25:05 / Björg

Loksins...

....nenni ég að skrifa eitthvað :) ég er sumsé ekki alveg hætt þessu bloggeríi hérna.

Fullt búið að gerast síðan síðast, m.a. hef ég farið til Kaupmannahafnar :) :) æðisleg ferð (doldið brók eftir hana ;) eyddi "slatta"), svo fór ég í Landmannalaugar, sem var líka alveg meiriháttar ferð, geggjað gaman og ég er algjörlega komin með ferðabakteríuna, langar bara út á land og þvælast og labba og skoða :) :).  Svo fór ég í aðgerð vegna smá veikinda (nó díteils hír, þið verðið að spyrja mig face to face ef þið vitið ekki nú þegar).  Og svo núna um helgina fór ég til Akureyrar :) :) geggjað veður og frábær ferð (allar ferðir æðislega, meiriháttar frábærar :D 8)).  Við vinkonurnar ætluðum á Litlu Hryllingsbúðina á föstudeginum, en sýningin var barasta felld niður vegna veikinda leikkonu..... en við gerðum bara gott úr því, fórum út að borða og á smá kaffihús og höfðum það bara rólegt og næs á föstudeginum.  Á laugardeginum fórum við í smá túristafíling og skelltum okkur uppí Kjarnaskóg í smá gönguferð í góða veðrinu.  Fórum auðvitað að leika okkur í rólunum og vegasaltinu þar líka, enda algjör börn í anda ;).  Svo fórum við í Jólahúsið og skoðuðum aðeins þar og lágum svo bara í leti og sleiktum sólina.  Um kvöldið var svo farið á Friðrik V og borðað, meiriháttar matur :) og svo auðvitað á Sjallann á eftir :) :) enda DJ Páll Óskar á svæðinu.  Alveg geggjað stuð, dansaði helling og við skemmtum okkur alveg konunglega.  Týndum reyndar svo að lokum hver annarri (Sólrún reyndar stakk af og keyrði heim) en við Ágústa löbbuðum sumsé í sitthvoru lagi heim eftir ballið ;)

Á leiðinni heim í gær vorum við áfram túristar og stoppuðum reglulega og skoðuðum landið okkar :) m.a. fórum við uppað Borgarvirki í Víðidal :) magnað alveg og frábært útsýni, mæli með því.  Það voru því þreyttar en jafnframt kátar stelpur sem komu í bæinn í gærkvöldi.

P.s.  Já alveg rétt, ég á besta pabba í heimi :) :) :) hann lánaði mér jeppann sinn um helgina og svo til að toppa það, þá þreif hann minn bíl, að innan og utan, áður en ég kom heim í gær :) :) :D alveg æðislegt - takk aftur elsku pabbi :) :).


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 15:29:09 / Björg

Smá aldurspróf ;)

You Are 27 Years Old
Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.


http://www.blogthings.com/whatagequiz/

Enda segja flestir sem ég hitti í fyrsta sinn að ég líti út fyrir að vera svona 26-28 ára ;) passar greinilega.

Segið mér hvað þið "greinist" gömul :) :)


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 15:00:24 / Björg

Keramikmálun

Hvað er að gerast, ég bara blogga dag eftir dag ;)??

Ég bara varð að segja frá gærkvöldinu :) :) fór með BÁS-vinkonum að mála á keramik.  Var alveg meiriháttar gaman og við ætlum sko alveg örugglega að fara aftur.  Mæli með þessu fyrir alla, maður þarf ekkert að kunna að teikna eða mála voða vel, það eru svo mörg hjálpartæki til þarna, þannig að allir geta komið út með listaverk (vona allavegana að mitt líti ágætlega út :o).  Málaði að sjálfsögðu engla á diskinn sem ég gerði :) svo fer þetta í brennslu og við fáum hlutina okkar eftir viku.  Þetta er svo sneddí, maður bara velur þann hlut sem maður vill mála á og borgar bara fyrir hann.  Málning, penslar, svampar, skapalón og allt á staðnum, rosalega þægilegt og gaman.  Ég ætla m.a.s. að auglýsa staðinn hér :) www.keramik.is.  Svo fær maður svona afsláttarkort og það er afsláttur í 3ja hvert skipti, rosa fínt.  Og mér fannst þetta alls ekki dýrt, málaði á svona partýdisk, sem er hægt að hafa ídýfur og snakk í (eða bara nammi ;)) og hann kostaði 2.550kr., sem er bara eins og ódýr svoleiðis út í búð.  Verður miklu skemmtilegra þegar maður hefur svo gert hann sjálfur :) (þ.e. ef hann kemur flott út ;) tíhí, vona það).  Og það er hægt að mála á allt á milli himins og jarðar.  Var að spá í að mála á nokkra sushi-diska næst :) búa mér til stell.  Er alveg kolfallin fyrir sushi, og já talandi um að mæla með stöðum, þá mæli ég með Osushi í Iðuhúsinu í Lækjargötu.  Frábær stemning og ekki dýrt og MJÖG gott :) :).  Maður situr við langt, hátt borð, sem er í L, og á því miðju er svona færiband, þar sem diskarnir með sushinu koma hver á fætur öðrum.  Svo bara velur maður sér og borðar þar til maginn segir stopp ;) (sumir geta reyndar ekki hætt nógu snemma og borða á sig gat :D).  Meiriháttar gaman að sitja þarna og velja sér bita að borða.  Svo staflar maður bara saman diskunum og borgar við útganginn (mismunandi litir á diskunum, eftir því hvað bitarnir kosta).

Þannig að það er bara spurning um að skella sér á Osushi og fara svo að mála á keramik :) :).


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 10:44:57 / Björg

Ég veit...

... að ég er agalega löt að skrifa hérna.  Er bara dottin úr öllu bloggstuði, þó það sé hellingur að gerast þannig.  Alltaf á djamminu 8) alveg ótrúlegt hvað maður er með mikið úthald, hélt ég væri hætt að nenna þessu ;).  Fór t.d. á Verk og vit sýninguna sl. föstudag (með vinnuvinkonunum :D) og við vorum nærri þær einu kvenkyns þar inni, ferlega mikið stuð hjá okkur ;) enduðum svo niðrí bæ og borðuðum einhvern þann ógeðslegasta hamborgara sem ég hef smakkað (versta var að ég var svo svöng að ég bragðaði ekkert á borgaranum fyrr en hann var hálfur kominn ofan í mig :S).  Svo er ég að fara á salsa-dansnámskeið á morgun, föstudag og laugardag :) :) hlakka mikið til þess.  Verður eitthvað djamm í kringum það að sjálfsögðu ;) tíhí.  Og já, ég er að fara til Köben þann 11. apríl :) :) verð í 5 daga, kem rétt mátulega heim í páskasteikina hjá mömmu :).  Er að fara með vini mínum (ekki kærasta eins og Alli var að djóka með ;)) og ætla að sjálfsögðu í tívolí og versla helling :) 8).  Erum á þessu fína hóteli (vona ég :o) bara rétt við tívolíið og Strikið, gæti ekki verið betur staðsett.  Þannig að ef þið hafið einhverjar ábendingar um Köben og hvað er skemmtilegt að gera eða best að versla (fyrir utan Strikið ;)) þá endilega látið mig vita.  Hef ekki komið til Köben síðan ég var 10 ára.  Fór bara rétt í gegnum lestarstöðina þegar ég fór til Árhúsa hérna haustið 2000.

Well well, ætla að snúa mér aftur að vinnunni :) segið eitthvað sniðugt, svo ég viti að einhverjir eru að lesa þetta bull í mér ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2006 10:16:36 / Björg

Long tæm...

... nó wræt ;).

Nóg búið að vera að gerast, m.a. HÁSBÁS :) sumarbústaðaferð okkar vinkvenna, rosa gaman.  Svo hef ég farið í leikhús, út að borða, í bíó og bara hellingur að gerast ;) :).  Við í gönguklúbbnum í vinnunni erum svo að fara að byrja að labba á fjöll núna í dag, ætlum eitthvað létt og þægilegt svona til að byrja með og reyna svo að vera dugleg.  Erum eitthvað að spá í gönguferðum sumarsins og eru uppi einhverjar hugmyndir sonna :) :) kemur allt í ljós.

Annars hef ég lítið að segja, bara rosa ánægð með fína veðrið og birtuna sem er snemma á morgnanna og frammá kvöld :) :) bara ekkert nema æðislegt.

Segið þið mér svo eitthvað sniðugt :) og ég skal reyna að vera duglegri að pikka hérna á næstunni.... :) 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.02.2006 09:26:18 / Björg

Þórsmörk

Það var alveg geggjuð ferðin í Þórsmörk síðustu helgi :) :) :).  Alveg meiriháttar að komast útúr bænum og ekki skemmdi veðrið uppí mörk fyrir.  Alveg blankalogn og heitt.  Fékk bara sumarfíling í mig, gat alveg eins verið maí, eins og byrjun febrúar.

Lögðum snemma af stað á laugardagsmorgun og brunuðum bara austur eftir smá stopp á Select (sem var doldið fyndið... en það er önnur saga ;)).  Grenjandi rigning og leiðindarveður á leiðinni en um leið og við vorum komin inn að fyrstu ám á leið inní Þórsmörk, þá bara létti til og veðrið varð yndislegt.  Smá úði annað slagið um helgina, en það var bara hressandi og gott.  Árnar voru náttúrulega frekar vatnsmiklar en þetta gekk áfallalaust á leið inní mörk.  Vegurinn reyndar alveg hryllilegur, ekkert nema grjót og ófærur og allt hristist í bílnum (vorum doldið stressuð með bjórinn ;) hvort hann myndi springa í hossingnum ;)).  Svo var bara farið í göngutúr þegar við komum í Langadal og við nutum þess að vera úti í náttúrunni og anda fersku lofti að okkur.... sumir reyndar drukku eitthvað til að gera allt ferskara :o.  Auðvitað grilluðum við svo um kvöldið og drukkum öl og höfðum gaman :) :).  Einhverjir fóru í smá gannislag, fengu högg og annað og komu marðir og bláir í bæinn... :S og enn aðrir duttu frammúr efri koju ;) hehehe.
En svo á sunnudeginum, þá hafði eitthvað bæst í Krossá og við lentum í smá ævintýri að komast yfir hana!  Fyrri jeppinn fór nærri á kaf 8| og tókst með látum að gefa í og krafla sig uppúr straumharðri ánni!  Bíllinn fylltist af vatni og það var bara foss þegar þau opnuðu hurðarnar.  Þannig að við lögðum ekki í að fara á sama stað, þ.e. jeppinn sem ég var í, og fórum aðeins ofar.... en það bara vildi ekki betur til en við barasta festumst þar!  Í miðri ánni!  Náðum þó að krafla okkur smá upp en sátum svo bara föst þar.  Ég var farin að sjá fyrir mér kalt bað í Krossá og einhverjar skrýtnar björgunaraðgerðir :lol: en þá ákvað bílstjórinn að hætta á það að bakka aftur í hylinn sem við vorum nýkomin uppúr (vatn út um allt í bílnum) og okkur tókst að komast aftur á byrjunarreit.  Eftir þetta, þá skoðuðum við ánna mikið og ákváðum svo að lokum að fara yfir á doldið breiðum stað, þar sem okkur sýndist vera grunnt í miðjunni.  Sem betur fer tókst það svona líka vel, varla að vatnið færi uppá dekkin :) og við komumst heil og þurr yfir ánna.  Okkur létti svo að hinar árnar voru lítið mál, þrátt fyrir að vera nokkuð slæmar.  Ég hélt svo fast í handfangið í bílnum að hendin á mér var hálflömuð á sunnudagskvöld ;).  En þetta fór allt vel eins og ég segi :) :) og við lifum bara á skemmtilegum ævintýraminningum. 

Næsta ferðalag sem planað er er svo bústaðaferð BÁS um miðjan febrúar :) :) hlakka mikið til þess að fara aftur úr bænum.  Þetta er eins og dóp, um leið og maður fær smá skammt, þá vill maður meira ;).

Until next time.... :) :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 14:13:39 / Björg

Stolið frá brósa

Varð að setja þetta hérna inn (tók mér bessaleyfi að paste-a myndunum frá Jónasi, vini bróður míns, fylgdi textanum).  Stórkostlegur texti og passar við mörg tækifæri :) :D.


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7